miðvikudagur, október 29, 2003
Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag hún á afmæli hún elsku besta María mín, hún á afmæi í dag!!!!!! vvvvvúúúúúúúú!!!! Til Hamingju með daginn afmælisstelpa!!
Ég hlakka til að koma heim á eftir og fá köku hjá Maríu nammmmmm.....
posted by Arni at miðvikudagur, október 29, 2003
miðvikudagur, október 15, 2003
Jæja þá er maður klæddur og kominn á ról. Er að vísu búin n að skrifa eina færslu í bloggerinn í morgun en hún hvarf á mjög snyrtilegan en undarlegan hátt.... Jæja en hvað um það. Í gær fórum við fjölskyldan til Århus í leit að afmælis gjöf fyrir Maríu og bar sú leit heldur betur árangur. Einnig kíktum við í nýja mollið sem er einmitt stæðsta moll í Dk - samt minni en kringlan held ég allavega. Helvíti flott bygging innangengt frá lestarstöðinni og alles þannig að það er ekkert vesen fyrir okkur að komast þangað.
En mig langaði að deila með ykkur smá dæmi um það hversu frekir danir geta verið. Þannig var að við fjölskyldan vorum að bíða eftir að komast í lyftu í áður nefndu molli, meiningin var að komast á hæðina fyrir ofan. Þarna biðum við í sakleysi okkar ásamt 2 öðrum barnavögnum og 3 hjólastólum í einni röð sem var fyrir 2 lyftur, mjög einfalt. Þá kemur dönsk kjéllíng og riðst framm fyrir alla og plantar sér fyrir framan lyftudyrnar eins og hún eigi lyftuna bara skuldlausa. Við störðum á kjéllínguna stórum augum en sögðum ekkert frekar en hinir sem voru í röðinni. Heldur blótuðum við henni bara í sand og ösku - ég var svo reyður að mig langaðu að sparka í hana! Þar sem að ég er ekki orðinn allveg nógu sleypur í dönskunni þá lagði ég ekki í að fara að þenja mig af ótta við að hún skyldi mig ekki eða eitthvað. En ég er samt búinn að æfa rullu sem ég ætla að fara með næst þegar að þetta gerist, sem er örugglega ekki langt í ef ég þekki baunana rétt.
En ef mér skjátlast ekki er bróðir minn að lenda núna hér í DK. Velkominn.
posted by Arni at miðvikudagur, október 15, 2003
mánudagur, október 13, 2003
Hahahaha.... Þið hafið eflaust haldið að ég væri hættur að blogga en aldeilis ekki! Við erum hér frammi í stofu ég og lillan hún leikur sér á gólfinu en ég drekk morgunkaffið mitt og bíð eftir að klukkan verið 13 svo að ég geti farið með hana í sprautu, mamman er nefnilega lasarus og verður sennilega bara heima á meðan. Annars vona ég að ég sé ekki að verða veikur líka - ég er allur undarlegri en venjulega....
Þetta er ljúft líf að vera svona í skóla (allavega svona inn á milli) það er nefnilega alltaf frí í viku 42 sem einmitt núna, þannig að ég verð bara slakur heima og sinni famílíos. Og að sjálfsögðu mínum ástkæra bróðir sem er einmitt að koma í heimsókn núna í lok vikunnar. Það verður snilld að fá hann í heimsókn, enda ekki búinn að sjá hann í 9 mánuðui! sem er langur tími á minni stuttu æfi. Hann var með óskir um að slaka á á meðan að hann væri hérna og vildi helst gera mikið af því, þannig að ég fór á afslapelse.dk og pantaði alla diskana með Friðriki Karlssyni, jógaspólur með Kim Larsen, reykelsi og grænt te. Svo verður bara slakað á með krafti.
Þangað til næst.
Love
posted by Arni at mánudagur, október 13, 2003
fimmtudagur, júlí 31, 2003
Hæ hæ hó hó!! Hér er allt orðið rólegt aftur allir gestir farnir og við orðin 3 aftur í húsinu. Ég held að við séum búin að hafa það of gott - allavega er húsbóndinn orðinn eins og melóna í laginu og María er hætt að taka andköf þegar að ég fer úr bolnum, hún tekur bara hlátursköst í staðin....það er alveg inni í myndinni að fara að hreyfa sig aðeins hraðar þannig að ég passi í jakkafötin um jólin!!
Útileguhelgin ógurlega er senn að renna í garð en við MKG og AMÁ ætlum að halda kyrru fyrir í bænum enda er ekkert um að vera á Samsø þessa helgina frekar en allar hinar, þess í stað ætlum við að rölta í bæinn og skoða hvað allir þessi sölubásar á markaðnum hafa upp á bjóða. Hér er nefnilega búið að auglýsa svakalegan markað niður eftir allir göngugötunni og allt mögulegt til sölu þar.
Svo er skólinn að sjálfsögðu byrjaður og ég kominn á fullt í honum, lenti í grúbbu með 2 hressum dönum sem eru báðir á mínum aldri og af sama kyni. Spennandi að sjá svo hvernig okkur gengur svo að skapa það verkefni sem við erum búnir að fá úthlutað. En í ár eigum við að teikna (inter)net verkstæði þar sem 15 menn vinna. Þetta hús á að vera úr tré-einingum og þegar að við höfum lokið við að teikna húsið fer það í útboð og við fáum samsvarndi verk til að bjóða í. Svo eigum við að hanna framleiðslulínu á einingunum og stofna fyrirtæki í kring um allt þetta batterý. Sem sagt spennandi önn framundan....
posted by Arni at fimmtudagur, júlí 31, 2003
sunnudagur, júlí 13, 2003
Þá er önnur vinnuvika að hefjast og helgin búin að vera róleg og tíðinda lítil. Við fórum í dag og gengum niður í bæ og settumst þar á bekk og slökuðum okkur svoldið en ákváðum fljótt að það væri betra að fara heim og setjast í sólina heima í íllgresinu og mosanum í garðinum heima, og það var líka alveg rétt hjá okkur því það var miklu betra veður heima.....allavega var logn og 28 stig þar.....og er spáð þannig út vikuna hér - þannig að maður er ekki beint að öfundast mikið út í þá sem eru að sprengja sig til Spánar!!! Ágætt að geta bara verið heima og sólað sig og drukkið ódýran bjór úti í garði hjá sér og hugsað vel um fjölskylduna.
Annars er það svo merkilegt hvað dagarnir þjóta fram úr manni núna, vikan varla byrjuð og þá er hún komin á enda, ég vona bara að ég fari ekki að missa af miklu núna þega allt virðist þjóta áfram. Þetta eru svo sannarlega bestu dagar í lífi okkar Maríu - svo til að gera þetta enn betra þá koma ömmurnar og afarnir í heimsókn í vikunni og ætla að vera hjá okkur í smá tíma það verður sko gaman gaman!!! Spurningin er bara hvort að maður fari ekki bara og kaupi grill og grilli pulsur ofan í allt partyið þegar að þau koma....
posted by Arni at sunnudagur, júlí 13, 2003
miðvikudagur, júlí 09, 2003
Seinustu dagar eru búnir að vera alveg hreint ótrúlega skemmtilegir...Við fórum í dag með Andreu Marín í sína fyrstu bæjarferð og versluðum við handa henni ofur mjúkt flísteppi og rosalega girnilega sæng....enda er hún líka búin að sofa síðan að við lögðum hana í sængina. En það hefur hún líka gert í bæði skiftin sem að við höfum farið meða hana í vagninum þá hefur hún bara sofið og ekki rumskað fyrr en heim er komið...Loksins er einhver komin í fjölskylduna sem sefur meira en ég!!!!!
Það er svoldið gaman að finna hvernig maður breytist þegar að maður eignast barn...td þá þykir manni stórkoslegt þegar að sú stutta tekur sig til og kúkar á mömmu sína, gólfið og skiptiborðið!!! Það er bara gaman!! Ekki er ég viss um að mér hafi alltaf þótt sú hugmynd stórkostleg að láta einhvern kúka á mig.....en svona er lífið dásamlegt!!
Ég er að pæla í að byrja að vinna aftur á föstudaginn og leifa prinsessunum mínum að vera einum heima, en það er svosem ekkert langur tími því hér vinna smiðir bara til 13:00 á flöskudögum...Svo í næstu viku koma ömmurnar og afarnir til okkar og erum við heldur betur orðin spennt að hitta þau öll - enda ekki séð sum síðan um jólin.... buhuhuhuhu....en þau eru að koma jjjiiiiiibbbbííííii jeij
Ég ætla að setja inn nýjar myndir í kvöld...
posted by Arni at miðvikudagur, júlí 09, 2003
mánudagur, júlí 07, 2003
Hæ hæ. É g er bara rétta að láta vita af því að við erum búin að nefna litlu skvísuna Andrea Marín. Hún dafnar allveg rosalega vel og er dugleg að borða og sefur þess á milli - allger draumur! Hún er búin að fá fyrsta baðið sitt en var ekkert allveg nógu sátt við það en leið vel á eftir....
Og takk enn og aftur allir sem hafa skrifað í gestabókina!!!!!
posted by Arni at mánudagur, júlí 07, 2003
|