Árni segir sögur af sér og sínum


sunnudagur, júlí 13, 2003
Þá er önnur vinnuvika að hefjast og helgin búin að vera róleg og tíðinda lítil. Við fórum í dag og gengum niður í bæ og settumst þar á bekk og slökuðum okkur svoldið en ákváðum fljótt að það væri betra að fara heim og setjast í sólina heima í íllgresinu og mosanum í garðinum heima, og það var líka alveg rétt hjá okkur því það var miklu betra veður heima.....allavega var logn og 28 stig þar.....og er spáð þannig út vikuna hér - þannig að maður er ekki beint að öfundast mikið út í þá sem eru að sprengja sig til Spánar!!! Ágætt að geta bara verið heima og sólað sig og drukkið ódýran bjór úti í garði hjá sér og hugsað vel um fjölskylduna.

Annars er það svo merkilegt hvað dagarnir þjóta fram úr manni núna, vikan varla byrjuð og þá er hún komin á enda, ég vona bara að ég fari ekki að missa af miklu núna þega allt virðist þjóta áfram. Þetta eru svo sannarlega bestu dagar í lífi okkar Maríu - svo til að gera þetta enn betra þá koma ömmurnar og afarnir í heimsókn í vikunni og ætla að vera hjá okkur í smá tíma það verður sko gaman gaman!!! Spurningin er bara hvort að maður fari ekki bara og kaupi grill og grilli pulsur ofan í allt partyið þegar að þau koma....