Árni segir sögur af sér og sínum


miðvikudagur, október 15, 2003
Jæja þá er maður klæddur og kominn á ról. Er að vísu búin n að skrifa eina færslu í bloggerinn í morgun en hún hvarf á mjög snyrtilegan en undarlegan hátt.... Jæja en hvað um það. Í gær fórum við fjölskyldan til Århus í leit að afmælis gjöf fyrir Maríu og bar sú leit heldur betur árangur. Einnig kíktum við í nýja mollið sem er einmitt stæðsta moll í Dk - samt minni en kringlan held ég allavega. Helvíti flott bygging innangengt frá lestarstöðinni og alles þannig að það er ekkert vesen fyrir okkur að komast þangað.

En mig langaði að deila með ykkur smá dæmi um það hversu frekir danir geta verið. Þannig var að við fjölskyldan vorum að bíða eftir að komast í lyftu í áður nefndu molli, meiningin var að komast á hæðina fyrir ofan. Þarna biðum við í sakleysi okkar ásamt 2 öðrum barnavögnum og 3 hjólastólum í einni röð sem var fyrir 2 lyftur, mjög einfalt. Þá kemur dönsk kjéllíng og riðst framm fyrir alla og plantar sér fyrir framan lyftudyrnar eins og hún eigi lyftuna bara skuldlausa. Við störðum á kjéllínguna stórum augum en sögðum ekkert frekar en hinir sem voru í röðinni. Heldur blótuðum við henni bara í sand og ösku - ég var svo reyður að mig langaðu að sparka í hana! Þar sem að ég er ekki orðinn allveg nógu sleypur í dönskunni þá lagði ég ekki í að fara að þenja mig af ótta við að hún skyldi mig ekki eða eitthvað. En ég er samt búinn að æfa rullu sem ég ætla að fara með næst þegar að þetta gerist, sem er örugglega ekki langt í ef ég þekki baunana rétt.


En ef mér skjátlast ekki er bróðir minn að lenda núna hér í DK. Velkominn.



mánudagur, október 13, 2003
Hahahaha.... Þið hafið eflaust haldið að ég væri hættur að blogga en aldeilis ekki! Við erum hér frammi í stofu ég og lillan hún leikur sér á gólfinu en ég drekk morgunkaffið mitt og bíð eftir að klukkan verið 13 svo að ég geti farið með hana í sprautu, mamman er nefnilega lasarus og verður sennilega bara heima á meðan. Annars vona ég að ég sé ekki að verða veikur líka - ég er allur undarlegri en venjulega....

Þetta er ljúft líf að vera svona í skóla (allavega svona inn á milli) það er nefnilega alltaf frí í viku 42 sem einmitt núna, þannig að ég verð bara slakur heima og sinni famílíos. Og að sjálfsögðu mínum ástkæra bróðir sem er einmitt að koma í heimsókn núna í lok vikunnar. Það verður snilld að fá hann í heimsókn, enda ekki búinn að sjá hann í 9 mánuðui! sem er langur tími á minni stuttu æfi. Hann var með óskir um að slaka á á meðan að hann væri hérna og vildi helst gera mikið af því, þannig að ég fór á afslapelse.dk og pantaði alla diskana með Friðriki Karlssyni, jógaspólur með Kim Larsen, reykelsi og grænt te. Svo verður bara slakað á með krafti.

Þangað til næst.
Love