Árni segir sögur af sér og sínum


fimmtudagur, júlí 31, 2003
Hæ hæ hó hó!! Hér er allt orðið rólegt aftur allir gestir farnir og við orðin 3 aftur í húsinu. Ég held að við séum búin að hafa það of gott - allavega er húsbóndinn orðinn eins og melóna í laginu og María er hætt að taka andköf þegar að ég fer úr bolnum, hún tekur bara hlátursköst í staðin....það er alveg inni í myndinni að fara að hreyfa sig aðeins hraðar þannig að ég passi í jakkafötin um jólin!!

Útileguhelgin ógurlega er senn að renna í garð en við MKG og AMÁ ætlum að halda kyrru fyrir í bænum enda er ekkert um að vera á Samsø þessa helgina frekar en allar hinar, þess í stað ætlum við að rölta í bæinn og skoða hvað allir þessi sölubásar á markaðnum hafa upp á bjóða. Hér er nefnilega búið að auglýsa svakalegan markað niður eftir allir göngugötunni og allt mögulegt til sölu þar.

Svo er skólinn að sjálfsögðu byrjaður og ég kominn á fullt í honum, lenti í grúbbu með 2 hressum dönum sem eru báðir á mínum aldri og af sama kyni. Spennandi að sjá svo hvernig okkur gengur svo að skapa það verkefni sem við erum búnir að fá úthlutað. En í ár eigum við að teikna (inter)net verkstæði þar sem 15 menn vinna. Þetta hús á að vera úr tré-einingum og þegar að við höfum lokið við að teikna húsið fer það í útboð og við fáum samsvarndi verk til að bjóða í. Svo eigum við að hanna framleiðslulínu á einingunum og stofna fyrirtæki í kring um allt þetta batterý. Sem sagt spennandi önn framundan....