Árni segir sögur af sér og sínum


fimmtudagur, júlí 03, 2003
Jæja þá eru loks fréttir af okkur Maríu!!! Við eignuðumst yndislega dóttir kl 11:33, svoldið stóra 4110gr og 54 cm...sem var ekki nema kílói frá því sem að ljósmóðirin "okkar" reiknaði með!!!! Enda kom þetta öllum frekar mikið á óvart hvað hún var stór því ekki erum við María Það!! Konu og barni heilsast vel en þurfa að vera á fæðingardeildinni vegna brjóstargjafarvesens og þess vegna er ég bara sendur heim:-( frekar súrt. En ég var að enda við að setja inn myndir af krúttinu...það koma fleiri á morgun af sætustu stelpu í heiminum! Og líka fréttir af okkur!

Takk allir sem hafa skrifað í gestabókina, þið eruð æði!!!!!


miðvikudagur, júlí 02, 2003
Eitthverntíma var mér sagt að engar fréttir væru góðar fréttir, það á svo sannarlega við núna því lífið hefur svo sannarlega verið rólegt hjá okkur upp á síðkastið. Fórum að vísu út að borða á hamborgaraknæpu í gær svona aðeins til að lifta okkur upp, og var það kærkomin breyting á hversdagslífinu. En um helgina þá verður Elton John að spila í garðinum hjá okkur (allt að því) og við getum fullvissað ykkur um að það mæta fleiri þangað en á tónleikana hans á Íslandi hérna um árið, það var nú ljóta klúðrið!!!


sunnudagur, júní 29, 2003
Það verður sennilega ekki mikið legið í garðinum með jarðaber í dag því í morgun ringdi eins og hellt væri úr fötu - en bara í svona 30 mínútur og svo var komið gott veður aftur. Ég horfði á formúluna í dag og þegar að hún var búin þá var María búin að baka þessa fínustu marengsköku með rjóma og jarðaberjum, það var fínasta sárabót því ekki fór formúlan eins og ég vildi að hún hefði farið...en Montoya er góður!!! En nú er ég að fara að ráðast í það mikla verk að taka til í geymslunni okkar...