Ég var að enda við að setja inn myndir frá páskum og júróvision, svo er ein enn bumbumynd af Maríu...Góða skemtun!
posted by Arni at laugardagur, júní 14, 2003
Þá er kallinn kominn í sumarfrí eftir nokkuð anna-sama önn..Ég fór í prófið í gær og stóð mig bara vel þótt að ég segi sjáfur frá. Prófið fór þannig fram að við hengdum verkefnið okkar upp og kynntum það svo í 20min hver, fyrir framan 6 kennara og 2 "sensora" en þeir eru bara eitthverjir kallar utna úr bæ. Út úr þessu náði ég tölunni 9 og er ég viss um að það er að hluta til af því að ég var með opna buxnaklauf í prófinu....frekar halló.....
Annars er bara allt gott að frétta, við fórum til ljósmóður í gær og hún sagði að krílið væri búið að skorða sig fast þannig að það er tilbúið að koma í heiminn. Annað en mamma þess og pabbi,þau fengu bara skammir frá ljósmóðurinni fyrir að vera ekki búin að kaupa allt sem þarf fyrir krílið þannig að á morgun er meiningin að fara í bæjarferð og kaupa sængurföt og eitthvað annað smálegt sem vantar.
posted by Arni at föstudagur, júní 13, 2003
Það skiptist á með skin og skúrum hér,það eru engar smá rigningar, þrumur og eldingar þannig að það dvín í öllu,en við erum búin að venjast þessu og erum ekki lengur hrædd...
Búið að vera fínasta helgi hjá okkur.Á föstudaginn fór ég í hárgreiðslu alla leið í mosann (sem er Íslendingahverfið hér) og ég var svo óheppin að missa af strætó og nennti ekki að bíða eftir næsta þannig að ég fékk mér bara göngutúr heim og var orðin svolítið þreytt þegar ég loksins kom heim.En viti menn,ég á svo myndarlegan mann að hann var búin að taka til og ryksuga og ekki nóg með það þá var hann líka búin að baka fyrir mig pitsu...geri aðrir betur...Í gær var okkur svo boðið í mat til Ernis og Valdísar og fengum rosa góðan mat og pönnukökur í eftirrétt og horfðum með öðru auga á Danmörk-Noregur...Í dag var svo smá tiltektaræði í okkur þegar Árni var búin að læra og fluttum til hillur og hengdum upp myndir...
Aðeins 3 dagar í próf hjá Árna...
posted by Arni at sunnudagur, júní 08, 2003