Árni segir sögur af sér og sínum


miðvikudagur, maí 28, 2003
Það er brostið á með blíðu hér í Danmörku, í dag voru litlar 28 gráður í garðinum hjá okkur og María lá í sólbaði þar í part úr deginum. En á meða að hún borðar ís og lætur fara vel um sig þá fæ ég að hanga inni í fúlli kennslustofu og svitna eins og ég fái borgað fyrir það....En þetta stendur allt til bóta því að það eru ekki nema tvær vikur eftir af skólanum og þá er ég kominn í sumar-vinnu-frí. Annars gengur skólinn bara vel við erum á fullu að leggja lokahönd á vekefnið og klára nokkra lausa enda.

Á morgun er Kr.Himmelfart dag(eða eitthvað svoleiðis) og ætla ég að kíkja aðeins í skólan fram yfir hádegi en eftir það er ég að spá bara að liggja á bakinu úti í garði og fá mér einn eða tvo gula og njóta dagsins með Maríu og Kúlubúanum okkar ;o)


sunnudagur, maí 25, 2003
Þá er ein helgin í viðbót liðin. Á föstudaginn fórum við til Aarhus í tilbreytingarferð þar var gaman að koma eins og venjulega, en þetta er eitthver sú vinalegasta borg sem ég hef komið til. Þar eyddum við deginum í búðarráp og annað skemmtilegt, en við versluðum föt á mig þar sem ég var orðinn hálf fatalaus....Svo í gær var nátturlega aðalmálið júróvisjón og allt sem því fylgir. Við hittumst nokkur hjá Disvari&co og snæddum saman kvöldverð og skemtum okkur saman yfir keppnini og fórum svo á sveitaball hjá Íslendingafélaginu, það var rosa fjör og vorum við ekki kominn heim fyrr en seint og síðar meir. Bíó ferðin sem átti að vera í dag var svo blásin af vegna góðs veðurs og svoleiðis. Í staðin vorum við bara heima í dag og kom Ása með bakkelsi til okkar og ég skrapp í tennis með Mark bekkjarbróðir mínum....