Árni segir sögur af sér og sínum


fimmtudagur, maí 22, 2003
Hæ hæ!!! Það er nú bara allt gott að frétta af okkur og meira til því við höfum verið í smá baráttu við lín sem er nú lokið...jibbíí...þannig að nú erum við hætt að blóta lín í sand og ösku,allavega í bili...En annars gengur lífið sinn vanagang á Emil Bojsens gade.Það var mömmuklúbbur í gær hjá mér þannig að Árni var heppinn þegar hann kom heim úr skólanum og fékk fullt af kökum en í staðinn fékk hann heldur engan kvöldmat því húsmóðirin var ekki alveg að standa sig í stykkinu.Ég fékk mér göngutúr í bæinn í dag og hvað haldið þið?Það eru jóladagar í bænum núna um helgina jólasveinn og jólalest og jólatilboð og í einni búðinni sem ég fór í var boðið uppá piparkökur,haldiði að það sé í lagi með dani??? Á morgun stefnum við á að fara til Århus svona aðeins til að breyta um umhverfi og hlakkar okkur mikið til því það er orðið ansi langt síðan við höfum farið eitthvað út fyrir Horsens.Ég ætla líka að draga Árna í bíó kannski um helgina því á morgun er verið að frumsýna hér chicago og verður hún sýnd kl.18:50 í ekki meira né minna en 14 daga svo það er eins gott að gleyma sér ekki...Svonáttlamáekkigleymajúróvísion...erum orðin rosa spennt...


mánudagur, maí 19, 2003
Heldur betur búin að vera ljúf helgi hjá okkur Maríu. Byrjaði nátturlega með fríi á föstudaginn en þrátt fyrir það var bara leigið heima og slakað á fram að kvöldmat en þá tók húsbóndinn sig til og bakaði pizzu, sem vekur alltaf lukku hjá heimilisfólkinu. Svo á laugardaginn fórum við og kíktum á sirkusinn, hann leit bara nokkuð vel út að utan en inn fórum við ekki en hver veit hvað við gerum á næsta ári þegar að hann kemur til baka.Um kvöldið buðum við svo Ásu í mat til okkar og var hún hjá Maríu fram á kvöld en ég brá mér aðeins út í bæ.... Sunnudagurinn var svoldið þéttur því að við byrjuðum á að fara í kaffi til Ingvars og Vigdísar og stelpnanna þeirra og horfðum á F1 og ræddum málefni líðandi stundar. En í gærkvöldi var okkur boðið í mat til Einars og Evu, þar fengum við dýrindis íslenskar lambakódilettur með öllu tilheyrandi. Eftir matinn fengum við okkur svo göngutúr heim í gegnum skóginn við norðurströndina og ég verð nú bara að segja það að sú leið kom mér töluvert á óvart, ótrúlega róleg og falleg leið rétt við kantinn á bænum, nokkuð viss um að við löbbum hana aftur!!

Annars er lítið á dagskrá næstu daga, öllum farið að hlakka til að horfa á júróvisjónum næstu helgi. Svoldið fúlt að danir séu ekki með því það vantar alla spennu og kynningar fyrir keppnina, en svona er það nú bara.....