Jæja þá er það búið og gekk bara ekki sem verst en þetta var bara æfingarpróf til að sjá stadusinn á okkur og kom okkar grúbba bara ágætlega út... En eins og ég minntist á hér um daginn er ég kominn með vinnu í sumar hjá því merkilega fyrirtæki Horsens Boligudlejning og er ég mjög spenntur að byrja þar, þetta verður víst svona "út um allt" vinna sem sagt einn stór rúntur....
Á morgun ætla ég að sofa út því það er frí hér í DK og af því að ég var í prófi í dag, en það er víst venja að þegar að ég er búinn í prófi þá er frí hér....Þannig að við ætlum bara að slaka á og njóta þess að vera hér í sumrinu og bregða okkur jafnvel bara í göngutúr. En á morgun verður eitthver sirkus að flækjast hér í bænum og hver veit nema að við kíkjum bara á hann og reynum að sjá fílinn því við misstum af honum seinast.
posted by Arni at fimmtudagur, maí 15, 2003
hæ hó !!! Bara svona rétt til að láta vita af okkur.
Það er allavega ekki mikið að frétta af okkur þessa dagana.Árni er bara alltaf í skólanum að læra og ég rétt sé hann þegar hann kemur heim til að borða og svo til að sofa.En prófið er á morgunn svo ég vona að hann láti sjá sig heima um helgina.Kannski bara baka ég fyrir hann eða tek uppá einhverju sniðugu ráði til að lokka hann til að vera heima...:-)...nei nei ég bara segi svona,ég held að honum langi líka til að taka sér smá frí því svo fer hann að undirbúa sig fyrir vorprófið sem er 12.júní.
posted by Arni at miðvikudagur, maí 14, 2003
Hvað haldið þið..ég er kominn með
vinnu í sumar og byrja þann 16. Júní kl 07:00...glæsilegt...
posted by Arni at mánudagur, maí 12, 2003
Við ætlum að lýsa yfir frati á Íslendingafélagið hér í Horsens.Við sem vorum svo glöð að geta horft á íslenskt snjónvarp og full tilhlökkunar fengum bara ekkert sjónvarp að sjá.Í gærkvöldi sendu þeir út auglýsingu um að þeir næðu ekki útsendingunni og aflýstu bara skemmtuninni.Við urðum náttúruleg þvílíkt fúl því það er ekki á hverjum degi sem við ákveðum að fara á svona gleðskap þessa dagana.Jæja við ákváðum þá að fara bara uppí skóla til Árna og fylgjast með á netinu,komum við á bensínstöðinni og keyptum okkur nammi því við ætluðum að hafa það svo gott.En viti menn allt kom fyrir ekki,netið í skólanum lá niðri...Þannig að engar fréttir fengum við og gátum ekki einu sinni lýst yfir vonbrigðum okkar hér á blogginu...En við björguðum málunum og fengum fjölskylduna á Ölduslóð til að senda okkur sms með fréttum en þá vorum við orðin svo lúin að við vorum bara komin í háttinn...en takk fyrir að vera svona góð við okkur...
En í þessum skrifuðu orðum fékk ég sms og fékk líka þessar yndislegu frétti,Heiðdís vinkona mín fæddi strák í morgun!!! TIL HAMINGJU HEIÐDÍS OG GÍSLI!!!
Nú er ég svo ánægð að ég hef ekki einbeitnigu lengur,verð að kveðja...bless í bili...mk
posted by Arni at sunnudagur, maí 11, 2003