Hó hó hó....Gærdagurinn var frekar kaldur en samt létum við okkur hafa það í göngutúrinn um Bygholm park og hittum þar Ingvar, Silju Rós og foreldara hans, svo röltum við heim eftir tveggja tíma spásseringu, sem þykir helvíti gott nú til dags. Þegar að við vorum rétt komin inn úr dyrunum hringir Hjörtur og bauð okkur í vöfflukaffi, sem við þáðum að sjálfsögðu með þökkum! Klara, konan hans var nefnilega svo myndó að baka þessar líka fínu vöfflur og sátum við hjá þeim fram eftir degi og hlustuðum m.a. á Ragnhildi dóttir hans segja okkur furðulegar sögur af jólasveinunum sem komu til hennar um seinustu jól...Kvöldinu var svo bara eytt í slökun og þess háttar. Í dag erum við svo ekkert búin að gera nema að sötra öl (ég er aðalega búinn að sjá um það) og bíða eftir að María geti gert "Hard Rock salat" í kvöldmatinn, hún hefur minnst reglulega á það í dag að það sé "Hard Rock salat" í kvöldmatinn...En núna er ferðinni heitið heim að horfa á heimildarmynd um dönsku söngkonuna Julie.
posted by Arni at laugardagur, apríl 19, 2003
Kominn í páskafrí!!! Við erum búin að sitja úti í garði í dag og sóla okkur og lesa Okay, sem er nýjasta slúðurblað dana. Og að sjálfsögðu er litli kallinn búinn að fá fagur rauðan lit á andlitið og María líka :) Á morgun er meiningin að fara í svoldið góðan göngutúr, jafnvel að ganga alla leið í Bygholm park, en við sjáum bara til hversu hress við verðum á morgun...
posted by Arni at fimmtudagur, apríl 17, 2003
Það er heldur betur að rætast úr veðrinu hér, eftir viku sem bauð okkur upp á snjóstorm að hætti dana og slyddu er komið 15 stig og sól í allan dag. Af því tilefni skelltum við María okkur heljarinnar göngutúr og gengum við niður á bryggju þar sem skútukeppni var að ljúka: Þar voru 20 til 30 bátar allir á kerrum og voru sumir eigendur þeirra að bóna þá!! Virkilega glæsilegir bátar. Þaðan lá svo ferðin í Danska ríkissirkusinn, en þeir vildu ekki kaupa mig, þannig að við skoðuðum bara úlfvaldana, mörgæsirnar og selina í staðinn...Þetta er allveg fullvaxinn sirkus með fílum og dvergum en við náðum nú ekki að sjá fílinn þannig að við fórum bara niður í bæ og fengum okkur ís í staðinn. Svo á morgun er ég að fara í skólann en það er nú samt komið páskafrí en grúbban ætlar samt að hittast í vikunni og læra svoldið þannig að það verði kannski aðeins léttara eftir páska....
posted by Arni at sunnudagur, apríl 13, 2003