Þá er það langur laugardagur í dag...Málið er það að við urðum að flyja út úr húsinu vegna þess að húsbódinn tók sig til og skúraði gólfið, sem þýðir blautt gólf næstu 2 tímana...Við byrjuðum daginn á að fá okkur rjúkandi Latté og ristað brauð síðan var haldið í Bilka, nú vil ég lýsa yfir frati á Bilka!!! Þannig er nefnilega mál með vexti að undanfarna 5 til 6 laugardaga hef ég farið í Bilka að versla eitthvað smotterí sem ekki fæst í netto og alltaf verið svo lánsamur að detta inn á rauðvínskynningu, sem er nú ekki slæmt þegar um svona belgi eins og mig er að ræða....En í dag þá var ekki rauðvínskynning, bara alls eingin!! Ég er að hugsa um að fara í fýlu og mótmæla í eina viku með því að fara ekkert í Bilka og ekki hugsa meira um þessi vonbrygði...En allavega verður kjúlli í kvöld og er það nú ástæða til að fagna þar sem svoleiðis munaður er ekki á hverjum degi á mínu heimili. Góða helgi
posted by Arni at laugardagur, apríl 05, 2003
Það var nú heldur bertur nóg að gerast hjá Maríu í dag. Hún skelli sér í Ásinn og hélt á fund kvenna sem allar eiga það sameiginlegt að ver óléttar eða með pínu-kríli...Þetta er svona mömmuhópur og ætla þær að hittast aftur eftir 3 vikur, spennandi það!!! Annars er það að mér að frétta að ég er að vinna að verkefni í skólanum sem heitir: "Virksomhed og teknologi", mjög áhugavert. Þar eigum við að reikna út tilboð í geymslur og hjólaskýli og skrifa svo skýslu um allt heila partyið og breyta fyrirtækinu í stór-kompaní, halda reisugill og fara svo í páskafrí...
posted by Arni at miðvikudagur, apríl 02, 2003
Til hamingju mamma og pabbi með brúðkaupsamælið og til hamingju ég, í dag eru ákkúrat 24 ár síðan að ég var skírður!!!!! Annars vorum við María að ljúka við seinustu fiskibollumáltíðina í bili, ora-bollurnar sem við versluðum í nettó eru nefnilega komnar ofan í maga og ég er ekki frá því að þetta hafi verið bestu bollur sem ég hef smakkað!! Svona þegar öllu er á botninn hvolft þá er þetta sennilega Íslenskasti dagurinn hér lengi þ.a.s matarlega og veðurlega, allavega fauk ég út í búð þegar að ég fór að kaupa kartöflurnar og barðist við rokið á leiðinni heim og var orðinn svo hrakinn þegar heim var komið að ég þurfti að skifta um buxur. En það hefur nú aldrei depið neinn að fara í hreinar buxur, ekki að þær hafi verið óhreinar heldur bara blautar...
posted by Arni at þriðjudagur, apríl 01, 2003
Hér eru allir orðnir kakóbrúnir þar að segja danirnir, við María erum bara föl eins og sannir Íslendingar...Annars er þetta nú svoldið mekilegt hvað Danir taka snökkt lit, eða eru þeir kannski bara nokkuð duglegir við ljósabekkina? Það kæmi manni svo sem ekkert á óvart því hér eru ótrúlega margar ljósastofur til dæmis ef ég labba úr skólanum og niður í bæ (ca 300m) fer ég fram hjá 3 stofum, svo er allveg hellingur út um allan miðbæ. En við María, við tökum ekki þátt í svoleiðis bulli og sólum okkur bara í garðinum heima sem er allveg rosalega fínn þegar er búið verður að taka hann í gegn..
Helgin leið bara að mestu rólega fyrir utan smá skjálfta í heitavatnsröri á aðfaranótt sunnudags, þvílík læti! Við héldum um tíma að húsið væri að hrynja eða við komin til Írak!! En við sváfum bara lengur í staðin og vorum alveg keng-rugluð þegar við vöknuðum klukkan 12 en þá var klukkan eitt...Ruglaðir þessir brunku-danir að vera að breyta klukkunni svona á miðju ári. Þessar breytingar voru svoldið að vefjast fyrir húsbóndanum á hemilinu og þurfti hann að spyrja oft hvað klukkan væri, ekki minkaði flækjan þegar að hann fattaði (ekki) að klukkan í tölvunni hafði breytt sér sjálf, þá var honum öllum lokið...
En við erum bjartsýn í byrjun nýrrar viku því margt er að gerast í viku 14. Afmæli margskonar t.d. Brúðkaups, skírnar og 29 ára... meira um það seinna. Gúdd bæ!
posted by Arni at mánudagur, mars 31, 2003