Þá er þrifnaðinum lokið í bili...en það er allt búið að vera á hliðinni í dag vegna tilltektar heima á Emil Bojsens Gade...Annars er allveg merkilegt hvað er hægt að hafa lélega sjónvarpsdaskrá á föstudegi, í gær var heil mynd um sókgarbjörn og eitthverja kalla sem voru að reyna að veiða hann (horfði ekki allveg nóg, til að geta lýst henni meira) svo þar á eftir var eitthver álíka skemtilegur Hemma Gunn þáttur. Ég sá mig bara knúinn til að fara að sofa upp úr 10 til að forðast imba-kassan, enda þreyttur eftir allt labbið í Århus. Þangað var haldið snemma í gær morgun því að var frí í skólanum og tókum við bara þennan hefðbunda rúnt. Þar að segja allur miðbærinn labbaður tvisvar sinnum og farið svo á Subway og labbað svo enn meira og farið svo heim í sólina. Það var nefnilega x-tra hlýtt í gær öruklega 20 gráður...
En við María viljum þakka öllum skrifin í gestabókina, þið eruð öll æði!!!
posted by Arni at laugardagur, mars 29, 2003
Í gær fórum við María á fæðingardeildina að skoða litlu prinsessuna sem Disvar&co voru að eignast,
ótrúlega sæt !! Þetta var einmitt sama fæðingardeild og við munum koma til með að leggjast inn á. Okkur leist bara svona glimmrandi vel á hana, uppi á 6. hæð og með útsýni yfir Horsens fjörð og allur aðbúnaður bara glæsilegur og svoleiðis...En þegar að maður sér svona lítið kríli kemst maður ekki hjá því að hugsa hvort það sé ekki brothætt...verður maður ekki að fara alveg rosalega varlega með barnavagninn, ekkert rally niður gönugötuna held ég. Svo þegar að við komum heim til okkar þá vorum við orðin svo spennt að við gátum ekki sest niður heldur drifum okkur í Netto og keyptum nanbrauð og kókópöffs, drifum okkur svo heim og fengum okkur pasta og horfðum svo á 24 tíma og friends. Allavega ég, María var enn með hugann uppi á fæðingardeild sem er allveg skiljanlegt þegar að maður sér svona mikla rúsínu!!!!
posted by Arni at miðvikudagur, mars 26, 2003
Loksins eru komnar fleiri myndir á myndasíðuna okkar...Endilega skoðið og skoðið og skoðið þær, til þess eru þær jú....
posted by Arni at mánudagur, mars 24, 2003
jæja...loksins...það er ansi langt síðan ég skrifaði síðast. Mér finnst Árni svo góður í þessu allavega betri penni en ég og hefur alltaf eitthvað sniðugt að segja.
En að öðru...Við erum búin að eiga ljómandi góða og skemmtilega helgi. Árni fór á skólaball á föstudaginn en ég slappaði bara af heima því mér finnst það svo notalegt.Svo vakti ég Árna greyið og dró hann með mér út snemma á laugardagsmorgunn...hahahahah...Kallinn var svolítið þreyttur og sagði mér að hann væri með smá hausverk...æi greyið...En við kíktum aðeins á mannlífið í bænum og fórum í matarbúð því við áttum von á matargestum...Áttum svo gott kvöld heima með Erni og Valdísi,ætluðum að vísu að spila "party og co" en eins og venjulega, þá var talað svo mikið að spilið komst ekki á dagskránna að þessu sinni...kannski næst...Dagurinn í dag var svo yndislegur lágum bara í sólinni og náðum okkur í smá brúnku...veitir ekki af eftir veturinn...en nú er komið kvöld og kuldi og best að fara bara að drífa sig í háttinn...
posted by Arni at sunnudagur, mars 23, 2003