Árni segir sögur af sér og sínum |
laugardagur, mars 22, 2003
Nú erum við sko ekki allveg sátt við bilka!!! Þeir sviku okkur og við fáum ekki myndirnar fyrr en á þriðjudagin, en það verður bara að hafa það! Og ég er ekki lengur rokkari, allavega er ég ekkert rokkaralegur, eins og ég er búinn að vera að byggja upp þessa hörðu ímynd. Ég var búinn að greiða mér svo fínt í gær áður en að ég fór í skólann, svo þegar að var að kveðja Maríu spurði hún mig: "Ætlarðu að fara svona í skólann?! Þú lýtur út eins og rokkari!!!" Ég varð nú svoldið sár en sennilega hefur það ekki komið nógu skýrt framm að ég er fokkin ívúl rokkari.....ekki eitthver gúmmíkall.....sem les nýtt líf og borðar plómur á meðan hann er í freyðibaði.. ónei ekki ég....
Glæsilegt í morgun, jógúrtið sem er ekki með bitum og fjarðarpósturinn..er það ekki toppurinn á tilverunni??? Gamli og Gamla sendu okkur nefnilega bunkann af Fjarðarpóstum og nýja blaðið sem heitir VF, og er prentað á öðruvísi pappír en Fjarðarpósturinn. Svo var líka eitt Séð og heyrt með og vorum við María öllu fróðari um allt fræga fólið heima á íslandi t.d vissuð þið það að Fjölnir Þorgeirsson er farinn að kenna box á Hvolfsvelli??? fimmtudagur, mars 20, 2003
Fimtudagur.....Á morgun er föstudagur......ég er hálf andlaus þessa dagana. Í kvöld er stefnan sett á sófan og afslöppun eftir gríðar erfiðan dag í skólanum, eða kannski að maður kíki aðeins á verkefnið í kvöld og veði þá með allt á hreinu fyrir bygginga fundinn á morgun...þar sem ég mun fara á kostum eins og á öllum fundunum hjá okkur í vetur. En hvernig er það með ykkur? Hvað eru þið að gera þessa dagana....ég er allavega að fara að setja inn myndir á síðuna á morgun... sunnudagur, mars 16, 2003
Halló halló, vegna fjölda áskoranna hef ég ákveðið að skrifa nokkrar línur...Síðan seinast hefur ekki margt gerst sem ætti að hafa varanleg áhrif á líf okkar, nema þá helst að við erum búin að finna jógúrt sem er ekki með neinum bitum og fæst í búðinni okkar!!! Í gær brugðum við okkur út í garð til að njóta sólarinnar og 15 stiga hitans, það er ekki slæmt að sitja úti í garði og fá sér einn gulan í logni og sól...og það um miðjan Mars...jömmí.. Við erum búin að fá dagsetningu á fyrstu gestina okkar í sumar en það er hin nýfarna tengdafjölsylda mín og ætla þau að snúa aftur til Hrossanes þann 16. Júlí og mamma og pabbi 2 dögum seinna, spennandi tími það...Svo hef ég vegna þrýstings frá mágkonu minni sett inn link á síðu hennar, en það fóru svo fáir inn á hana að sennilega er þetta hennar eina von um að fá eitthvern þar inn hehehe;-) En við hjónaleysin brutum eftir langa bið 1000 heimsókna múrinn og þökkum öllum sem hafa nennt að lesa þetta bull í okkur fyrir innlitin og vonum að þið haldið áfram að koma þrátt fyrir að skrifað sé aðeins of sjaldan. Myndir eru líka væntanlegar hvað á hverju þar sem þar eru allveg að fara í framköllun og koma þá myndir af okkur og nýju íbúðinni...Kveðja úr danska sumrinu Árni&María |