Vorið er komið og grundirnar gróa....og ég man ekki meira úr þessu lagi....lalalaa....Í morgun vaknaði ég við fuglasöng og það var sólskin og fínerí, já vorið kom á föstudaginn og ekki orð um það meir!!! Við María vorum heima að elda veislumat eins og við gerum gjarnan á mánudögum en í þetta skipti urðu "Islandske fiskeboller" í Indverskri karry sósu fyrir valinu og þær voru delisíus...Annars er María búin að fá eðal-verkefni við erum nefnilega i fyrsta sinn komin með þvottavél, enda komin tími til eftir að hafa ekki þvegið fötin síðan um jólin og sum ekki síðan í apríl....ég hefði kannski betur slept þessum...Allavega er eitthver stór miskilningur í kring um þessa þvottavél því við eigum að fá tvær klst fyrir 10kr, en við fáum bara eina klst og þetta er kallinn sem á íbúðina ekki að fatta ekki nema að tvær klst sé bara ein í Bosníu þaðan sem hann kemur, og hálftími er kannski bara korter...þá er nú stutt til jóla, páskarnir búnir og allveg að koma 3. júlí;-) En María reddar þessu bara á meðan að ég sit á mínum auma rassi í skólanum og held áfram að belgja mig út af visku og vísindum, þetta er jú vísindi er það ekki?
posted by Arni at mánudagur, mars 10, 2003