Árni segir sögur af sér og sínum


fimmtudagur, febrúar 13, 2003
Nú erum við búin að fara aftur til ljósmóður, en þar sem "okkar" var í fríi í dag fengum við að tala við aðra. Hún spurði okkur spjörunum úr og hlustaði á hjartsláttin í kúlubúanum og leyfði okkur að heyra, það hljómaði dásamlega og allt í gúddí með það eins og allt annað!! Svo fengum við annan tíma og eigum við ekki að koma fyr en eftir 8 vikur! (svoldið langur tími fyrir óþolinmóða) En þá er einmitt eitt ár upp á dag síðan að ég flutti hingað til DK!

Annars held ég að ég sé að gera alla vitlausa í kring um mig því það eina sem ég tala um þessa dagana er hve langt sé í vorið, ég held nefnilega að það fari bara að vora upp úr mánaðarmótum! Það væri voðalega gott að geta farið að rölta um í stuttermabol og sandölum, koma við á corfitz og fá sér einn gulan, smella sér í Tennis (hmm kanski að maður verði duglegri í sumar en í fyrra) og sóla sig á costa del Horsens beach, sem er einmitt lengsta og fjölsóttasta strönd í allri evrópu!!! En sennilega verður vorið ekki komið eftir tvær þrjár vikur eins og ég er að vona...En þá fáum við gesti sem okkur er farið að hlakka til að sjá, fjölskylduna hennar Maríu eins og hún leggur sig! Þá verður nú stuð á heimilinu og aldrei að vita hvað gerist þá, meira um það seinna. Bless í bili.



miðvikudagur, febrúar 12, 2003
Jæja, þá erum við nú heldur betur búin að ferðast um nágrenni okkar á síðustu dögum. Á mánudagin smurðum við okkur nesti og lögðum af stað til Vejle upp úr hádegi, þar röltum við um bæinn og skoðuðum í búðir og fólkið sem þar var á ferðinni. Ég held bara svei mér þá að Vejle sé jafn fallegur bær og allir segja að hann sé. Við komum heim um kvöldmatarleytið og tókum á móti Badda og Þórdísi um kvöldið. Svo þegar við vöknuðum í gær ákváðum við að fara og taka okkur bíl á leigu og kíkja til Århus, bara svona í ganni eins og María segir: Við fórum í Ikea og röltum þar nokkra hringi (það er alltaf gaman í ikea). Svo fórm við og keyrðum um borgina og enduðum á að kíkja á "Den gamle by" en fórum ekki inn í bæinn því það var svo kalt og allveg að koma myrkur. Þá var leiðinni haldið heim en þegar við komum til Horsens þá tókum við nokkrar auka beygjur og kíktum til Juelsminde, sem er smábær rétt fyrir utan Horsens. Og úr því að við vorum með bílaleigubíl þá urðum við að koma við á McDonald´s og fá okkur ís á heimleiðinni...
Svo í dag er ekkert búið að gerast nema það að við ætlum að fara heim og taka á móti Badda hann er nefnilega að fara að sauma gardínur fyrir gluggana hjá sér....


sunnudagur, febrúar 09, 2003
Hó hó bó!!!! Fallegur dagur í dag, glampandi sól og logn, en samt svoldið kalt það er samt í lagi því við erum alltaf svo vel klædd. Í dag var antik markaður í Torsted hallen sem við hjónaleysin kíktum á. Þar var margt sem greip augað og líka margt sem ekki greip augað, helmingurinn af fjörinu hjá mér var að fara í strætóinn (maður er orðinn eins og 6 ára krakki!!) og sjá hluta af bænum sem ég hafði ekki séð áður, ég hafði nefnilega aldrei tekið leið 4 áður... En hvað um það, María heldur áfram að fara hamförum í húsi elds og vaknaði ég við angan af muffins og svo fékk ég afgangin af lasagne gærkvöldsinns í hádeginu, ekki dónalegt það! Vikan framundan er svo hin rólegasta því litli kallinn er í fríi alla vikuna og er þa´bara meiningin að vera slakur heima með kjellu, en það er allveg inni í myndinni að kíkja einn dag til nágranabæjar okkar annað hvort Vejle eða þá Århus ef vel skyldi viðra!! Þannig að ef einhverjum langar til að kíkja á okkur þá verðum við bara á Emil Bojsens gade 4 st (banka fast erum ekki komin með bjöllu): Svo er ekki úr vegi fyrst að þið eruð komin alla leið hingað á síðuna að kvitta í gestabók.....