Góðan dag, í fréttum er þetta helst: Árni og María voru heima í gær því þau kunna svo vel við sig þar. Elduð var pizza sem hefur ekki verið gert svo lengi sem elstu menn muna. Eftir pizzu át var horft á E.T. og viltu vinna miljón? En aðeins eru tvær sjónvarpsstöðvar í boði heima hjá þeim, en þykja þær með afbrygðum góðr þar sem friends og 24 tímar eru sýndir á þeim. Í dag laugardag er príðis veður þrátt fyrir þónokkra þoku og kulda, mælt er með því að vera heima og klára að taka upp úr kössum, þegar komið er heim af grænmetismarkaðnum þar sem kílóið af jarðeplum er á 9,95kr. Fréttir las Árni Magnússon.
posted by Arni at laugardagur, febrúar 08, 2003
Loksinns er tími til að skrifa féttir!! Við erum flutt í nýju íbúðina og laus for good úr hinni (sem betur fer). Við fluttum á laugardaginn með hjálp vaskra drengja og meyja og viljum við þakka þeim kærlega fyrir hjálpina. Svo fengum við gesti þegar fór að róast í flutningadeildinni og voru meira að segja sumir svo séðir og góðir að koma með heimabakað með sér til að gefa okkur og öðrum sem ráku inn nefið...Sunnudagurinn kom með miklum látum því við byrjuðum strax á því að taka upp úr kössunum og raða og græja allt dótð, svo komu Baddi og Þórdís í heimsókn og aftur kom Þórdís með heimabakað, snúða í þetta sinn en þeim leist svo vel á íbúðina og nágranana að þau ákváðu að flytja bara á hæðina fyrir ofan okkur!!! Þið getið ímyndað ykkur hvað verður gert í sumar, grill og tuborg=dejligt...
Svo er það aðalmálið, í gær þá fórum við í sónar og var það svoldið sérstök upplifun, en alveg meiri háttar gaman, raunar svo að við táruðumst bæði tvö, að fá að sjá erfingjan í fyrsta sinn. Við fengum að sjá hjata, heila og 10 fingur ásamt öllum aðal líffærum...og fengum við myndir til eignar en svo voru líka teknar módel-myndir (engin furða miðað við hvað foreldrarnir eru myndó;-) Semsagt allt var í himnalagi og var okkur seinkað um 5 daga þannig að "nýja" dagsetningin er 3. júli, en það skiptir ekki máli því það kemur þegar það er tilbúið......Svo í næstu viku er "frí" í skólanum hjá mér þannig að maður verðu bara slakur heima og hugsar um óléttu konuna sína og klárar nýja hreiðrið.
posted by Arni at þriðjudagur, febrúar 04, 2003