Árni segir sögur af sér og sínum


föstudagur, janúar 31, 2003
Í dag erum við bún að vera að rúnta um allan bæ á sendiferðabíl, sem við tókum á leigu. Svo fengum við íbúðina afenta nú undir kvöld og er hún hin glæsilegasta, við fengum Badda með okkur í lið og skrúfuðum saman hillur og skápinn góða. Svo á morgun ætlar heil hersveit manna að koma og hjálpa okkur að flytja en það eru svo margir búnir að vera svo vinalegir að bjóða sig framm og þeir fá allir 1000 þakkir fyrir það :-) Núna er allt á kafi í snjó hér og kaldara en í Síberíu, allavega finnst mér það þannig að maður bíður bara spenntur eftir vorinu, og sumrinu og litla/litlu.....


miðvikudagur, janúar 29, 2003
Það verður heldur betur nóg að gera hjá okkur um helgina, því við erm að fara að flytja eftir langa bið í betra húsnæði. Annars erum við María að verða eins og Lamba Palli og Gunni Hvassi ekki til fara eða neitt því um líkt, heldur erum við á stöðugri ferð um bæinn að leyta eftir gardínum og fataskáp og ýmislegu öðru sem okkur kemur til með að vanta í nýju íbúðina.Svo þegar við erum búin í þessum göngutúrum okkar sem fara stundum upp í tvo þrjá tíma er María svo uppgefin að hún er hætt að sjá allmenilega, en ég botna bara ekkert í þessu og arka bara áfram... ég er líka einn í mínum heimi og er ekkert að fatta þetta það segir allavega María... Við erum búin að vera að reyna fylgjast með handboltanum með hjálp allra ljósvakamiðla sem vinir okkar og frændur Danir bjóða upp á, Danir eru svo slappir í þessu öllu að við endum alltaf hér úti í skóla á netinu og fylgjumst með á 1X2 sem er betra en gos!! En nú erum við að fara heim að horfa á Danmörk-Rúsland.Sæl að sinni....


sunnudagur, janúar 26, 2003
Halló allir....og takk fyrir öll skrifin í gestabókina:-) Í dag ætluðum við að kíkja í smá stund til Ingvars og Vigdísar, en það endaði með því að þau buðu okkur upp á sídeigiskaffi og stórglæsilegan kvöldmat sem var hreint út sagt frábær, takk fyrir okkur.
Svo fórum við aftur í gær í Ide møbler og skiluðum ljósinu sem við keyptum í fyrradag og keyptum skeink í bakaleiðinni í genbrug á 150 kall!!! Það var nefnilega útsala þar eins asnalega og það kann að hljóma, 50% af öllu...
Í gærkvöldi fórum við svo til GrindavíkurBadda í 30 ára afmæli og var það bara mjög fínt og fjölsótt: Annars byrjar fjörið á morgun hjá mér í skólanum þá förum við nefnilega að byrja á hinu alræmda AutoCad....með 900 bls kennslubók, spennandi þar sem hún er ekki til í bókasölunni þá þurfum við að gjöra svo vel og ljósrita hana og tekur það alveg góðan hálftíma og helling af ljósritunnarkortum, ég held að ég taki bara með mér útvarp og kaffibrúsann í þetta verkefni.....zzzzz góða nótt zzzz