Árni segir sögur af sér og sínum |
fimmtudagur, janúar 16, 2003
Halló allir!!!! Í dag erum við búin að vera að velta fyrir okkur hvað við eigum að gera í íbúðarmálunum og erum við að fara á morgun og sækja um hjá ungdomsboliger, sem eru íbúðir fyrir námsfólk eins og okkur.
Sennilega hef ég aldrei á minni æfi fengið jafn furðulegan kvöldmat og í kvöld, nóakonfekt, tómatsúpu og vínarbrauð....og hver ætli hafi séð um matin nú auðvita húsbóndinn! Ég mæli alveg með þessari máltíð fljótleg og góð, en mér varð svoldið illt í maganum eftir matin en það er bara af því að ég borða eins og skepna, það segir allavega María... Gestabókin sívinsæla er alltaf á sama stað og það er möst að skrifa í hana því þið eruð svo skemtileg, svo viljum við líka vera í góðu sambandi við aðdáendur okkar sem fer fjölgandi dag frá degi. Svo má ekki gleyma litla snillingnum honum Kristni bróðir maríu en hann er líka með góðan blogger!! Jæja nú erum við öll að fara að sofa...Góða nótt...
Við höfum verið ansi löt undanfarið á blogginu en reynum að bæta úr því...
Af okkur er allt gott að frétta...Þessa dagana erum við að líta eftir nýrri íbúð og gengur það alveg ágætlega fyrir utan hvað það er dýrt að leigja:( Sérstaklega þegar við erum orðin aðeins kröfuharðari en áður og viljum enga lúsera íbúð...Íbúðirnar hér og húsin eru heldur ekki eins og á Íslandi,margar hverjar frekar "sjabbí"eða þá bara asnalegar,og við erum búin að átta okkur á hvað við erum alin upp í lúxusumhverfi á Íslandinu góða...En við vitum að á endanum finnum við góða íbúð... ...nú er orðið áliðið og við þurfum að koma okkur í háttinn...erum alveg að fá svefngalsa úr þreytu...góða nótt... mánudagur, janúar 13, 2003
jæja thetta verdur stutt núna, thví lyklabordid er á dønsku :(
ég kann ekki ad breyta thví,svo ég verd ad láta einhvern hjálpa mér med that... ...en ég ætladi bara ad láta ykkur vita ad vid værum komin á leidarenda og høfum that bara gott hérna í dk... ...hilsen Árni og María |